Vestmannaeyjahlaupið 2023 verður 2.september

31.08.2022

Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 2. september.

Boðið verður upp á 5 km og 10 km.

Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 13.

Sameiginleg upphitun hefst kl. 12:35.
 

Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 1.september í Íþróttamiðstöð Ve.

Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2008 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og kvennaflokki í hvorri vegalengd. 

 

Í ár verður í fyrsta sinn keppni milli hlaupahópa. Þegar keppandi bókar sig í hlaupið skráir hann nafn hlaupahóps sem hann vill keppa fyrir. Fjórir bestu tímar hlaupara í hverjum hlaupahópi telja í kvenna, karla og í blönduðum flokki. Lágmarksfjöldi hvers hlaupahóps eru því fjórir af sama kyni eða tvær konur og tveir karlar í blandaðri sveit.

Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.

Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is

Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á facebook

Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.