Vestmannaeyjahlaupið verður 7. september

21.08.2024
Vestmannaeyjahlaupið verður haldið laugardaginn 7. september.
Boðið verður upp á 5 km og 10 km.
Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 12:30
Keppnisgögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 6. september í Íþróttamiðstöð Ve. Þeir sem koma samdægurs geta sótt gögn á laugardeginum kl.11:00 - 12:30
Eitt þátttökugjald 4.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2007 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.
Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í karla og kvennaflokki í hvorri vegalengd.
Verðlaun í 10 km.
1.sæti 100.000 kr.
2.sæti 50.000 kr.
3.sæti 25.000 kr.
Verðlaun í 5 km.
1.sæti 50.000 kr.
2.sæti 25.000 kr.
3.sæti 15.000 kr.
Einnig verða veitt útdráttarverðlaun.
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímalega: herjolfur.is
Frí rútuferð í boði fyrir þá sem koma með 10:45 ferðinni, frá bryggju upp í íþróttahús.
Allar upplýsingar um mótið eru inn á vefsíðu hlaupsins vestmannaeyjahlaup.is
Þú getur líka fylgst með á facebook
Upplýsingar veita Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.